Maó Zedong
Kommúnistaleiðtogi og einræðisherra í Kína (1893–1976) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Maó Zedong (skrifað með hefðbundnum kínverskum táknum: 毛澤東, með einfölduðum táknum: 毛泽东, umskrifað með pinjin: Máo Zédōng, umskrifað með aðferð Wade-Giles: Mao Tse-tung) (26. desember 1893 – 9. september 1976) var kínverskur marxisti og pólitískur leiðtogi Kína. Maó er einnig þekktur sem skáld, rithöfundur og skrautskrifari.
- Þetta er kínverskt nafn: kenni- eða fjölskyldunafnið er Maó, eiginnafnið er Zedong.
Maó Zedong 毛泽东 | |
---|---|
Formaður kínverska kommúnistaflokksins | |
Í embætti 20. mars 1943 – 9. september 1976 | |
Forveri | Zhang Wentian (sem aðalritari) |
Eftirmaður | Hua Guofeng |
Formaður Alþýðulýðveldisins Kína | |
Í embætti 27. september 1954 – 27. apríl 1959 | |
Forsætisráðherra | Zhou Enlai |
Varaforseti | Zhu De |
Eftirmaður | Liu Shaoqi |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 26. desember 1893 Shaoshan, Hunan, Kína |
Látinn | 9. september 1976 (82 ára) Peking, Kína |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Kína |
Maki | Luo Yixiu (1907–1910) Yang Kaihui (1920–1930) He Zizhen (1930–1937) Jiang Qing (1939–1976) |
Börn | 10 |
Háskóli | Húnán Dìyī Shīfàn Xuéyuàn (湖南第一师范学院) |
Starf | Stjórnmálamaður, byltingarmaður, skáld, rithöfundur, skrautskrifari |
Undirskrift |
Maó Zedong tók þátt í stofnþingi kommúnistaflokks Kína árið 1921 sem fulltrúi Hunan-héraðs.[1] Hann var síðan skipaður formaður kommúnistaflokks Kína á 7. flokksþingi hans árið 1945.[2] Kommúnistaflokkurinn stofnaði Alþýðulýðveldið Kína árið 1949 undir forystu Maós og var hann leiðtogi þess til dauðadags árið 1976.[3] Maó hefur verið gagnrýndur mjög harkalega eftir dauða sinn og verður umfjöllun um hann sífellt neikvæðari því meira sem kemur í ljós.