Notre Dame
From Wikipedia, the free encyclopedia
48.8530°N 2.3498°A / 48.8530; 2.3498
Notre Dame kirkjan í París (oft nefnd Maríukirkjan í París á íslensku) (franska: Notre Dame de Paris) er dómkirkja í París, höfuðborg Frakklands, helguð Maríu mey. Kirkjan var reist á árunum 1163 til 1345 og stendur á eystri hluta Île de la Cité í París. Kirkjan er ein af vinsælustu ferðamannastöðum borgarinnar. Notre-Dame er í gotneskum stíl og geymir marga mikilvæga trúargripi, meðal annars flís sem sögur segja að sé úr krossinum sem Jesú var krossfestur á, nagla úr krossfestingunni og þyrnikórónuna sem var á höfði Jesú.
Hún var meðal fyrstu bygginga í heiminum sem byggðar voru með veggstuðlum, sem gátu stutt bygginguna utan frá. Ekki var gert ráð fyrir veggstuðlum þegar byggingin var hönnuð, en eftir því sem byggingin varð hærri byrjuðu skemmdir að myndast. Þá ákváðu arkitektarnir að leysa vandamálið, með því að styrkja bygginguna utan frá. Heildarflatarmál kirkjunnar er 5200m2 (4800m2 að innan).
Árið 2019, 15. apríl, varð bruni í kirkjunni þar sem turnspíra hennar og þak eyðilögðust sem og ómetanlegir listmunir. Slökkviliðsmönnum tókst að bjarga burðarvirki kirkjunnar. Áformað er að endurbyggja kirkjuna. [1]