Paul Manafort
From Wikipedia, the free encyclopedia
Paul Manafort (f. 1. apríl 1949) er bandarískur lögfræðingur, pólítískur ráðgjafi og umboðsmaður (e lobbyist) sem hefur starfað fyrir Repúblíkana og íhaldssöm hagsmunasamtök og þrýstihópa. Manafort starfaði sem ráðgjafi kosningastjórna Gerald Ford, Ronald Reagan, George H. W. Bush og Bob Dole. Hann var formaður kosningastjórnar Donald Trump frá júní til ágúst 2016.[1] Árið 2017 var Manafort ákærður fyrir að hafa hindrað framgang réttvísinnar og brot á lögum um áróður fyrir erlendar ríkisstjórnir í tengslum við rannsókn Robert Mueller sérstaks saksóknara í rannsókn þingsins á afskiptum rússneskra stjórnvalda af forsetakosningunum 2016. Í kjölfarið gerði Trump sem minnst úr hlut Manafort í kosningabaráttu sinni.[1] Manafort var dæmdur til alls sjö og hálfs árs fangelsisvistar
Paul Manafort | |
---|---|
Fæddur | 1. apríl 1949 (1949-04-01) (75 ára) |
Þjóðerni | Bandarískur |
Menntun | Georgetown-háskóli (BS, JD) |
Störf | Lögfræðingur, pólitískur ráðgjafi, umboðsmaður |
Maki | Kathleen Bond (g. 1978) |
Börn | 2 |