Pervez Musharraf
10. forseti Pakistans / From Wikipedia, the free encyclopedia
Pervez Musharraf (11. ágúst 1943 – 5. febrúar 2023) var pakistanskur herforingi sem var forseti Pakistans frá 2001 til 2008. Hann komst til valda eftir að hafa staðið fyrir valdaráni hersins gegn borgaralegum stjórnvöldum árið 1999. Hann útnefndi sjálfan sig forseta árið 2001 og kallaði til þjóðaratkvæðagreiðslu til að réttlæta stjórn sína árið 2002. Musharraf herti enn tökin árið 2007 með því að bola hæstaréttardómurum og herforingjum úr embætti og lýsa yfir sex vikna neyðarástandi. Hann neyddist engu að síður til að segja af sér næsta ár þegar stjórnarandstaðan hótaði því að kæra hann til hæstaréttar fyrir valdníðslu á stjórnartíð sinni. Musharraf yfirgaf Pakistan í kjölfarið og flutti til Lundúna.
Pervez Musharraf پرویز مشرف | |
---|---|
Forseti Pakistans | |
Í embætti 20. júní 2001 – 18. ágúst 2008 | |
Forsætisráðherra | Zafarullah Khan Jamali Chaudhry Shujaat Hussain (starfandi) Shaukat Aziz Mian Soomro (starfandi) Yousaf Raza Gillani |
Forveri | Muhammad Rafiq Tarar |
Eftirmaður | Muhammad Mian Soomro (starfandi) |
Handhafi framkvæmdavaldsins | |
Í embætti 12. október 1999 – 21. nóvember 2002 | |
Forseti | Muhammad Rafiq Tarar |
Forveri | Nawaz Sharif (forsætisráðherra) |
Eftirmaður | Zafarullah Khan Jamali (forsætisráðherra) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 11. ágúst 1943(1943-08-11) Delí, breska Indlandi (nú Indlandi) |
Látinn | 5. febrúar 2023 (79 ára) Dúbaí, Sameinuðu arabísku furstadæmunum |
Stjórnmálaflokkur | Múslimabandalag Pakistans (Q) |
Maki | Sehba Musharraf (g. 1968) |
Börn | 2 |
Starf | Herforingi, stjórnmálamaður |
Árið 2010 reyndi Musharraf að snúa aftur á stjórnmálasviðið með því að stofna nýjan stjórnmálaflokk, All Pakistan Muslim League. Hann hugðist snúa aftur til Pakistans árin 2011 og 2012 en honum var gert ljóst að ef hann stigi fæti á pakistanska grundu yrði hann handtekinn og ákærður fyrir spillingu.[1]
Musharraf dvaldi í útlegð í London og Dúbaí frá árinu 2014. Í desember árið 2019 dæmdi dómstóll í Islamabad Musharraf til dauða að honum fjarstöddum fyrir meint landráð.[2] Dauðadómurinn var ógiltur í janúar árið 2020.[3]