Píanó
hljómborðshljóðfæri / From Wikipedia, the free encyclopedia
Píanó (einnig stundum nefnt slagharpa, fyrst nefnt fortepíanó og píanóforte) er stórt hljóðfæri sem flokkast getur sem hljómborðshljóðfæri, ásláttarhljóðfæri og strengjahljóðfæri. Orðanefnd Verkfræðifélagsins mælti til þess árið 1926 að píanó yrði kallað yman á íslensku (af ymur). [1] Það orð náði takmarkaðri útbreiðslu, og er nú oftast kallað píanó, slagharpa eða flygill (þegar strengirnir liggja lárétt).