Tsai Ing-wen
Forseti Taívans / From Wikipedia, the free encyclopedia
Tsai Ing-wen (kínverska: 蔡英文;[1] f. 31. ágúst 1956) er taívanskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forseti Lýðveldisins Kína (中華民國總統), eða Taívan. Tsai er annar forsetinn úr Lýðræðislega framfaraflokknum (DPP) og fyrsta konan sem gegnir embættinu. Hún er einnig fyrsti forsetinn sem er bæði komin af fólki af Hakka-þjóðerni og af taívönskum frumbyggjum,[2] fyrsti forseti landsins sem ekki er giftur og fyrsti forsetinn sem hefur náð lýðræðislegu kjöri án þess að hafa fyrst verið borgarstjóri Taípei. Hún var formaður Lýðræðislega framfaraflokksins frá 2008 til 2012 og frá 2014 til 2018 og var forsetaframbjóðandi hans árin 2012, 2016 og 2020.
- Þetta er kínverskt nafn: kenni- eða fjölskyldunafnið er Tsai, eiginnafnið er Ing-wen.
Staðreyndir strax Forseti Lýðveldisins Kína, Forsætisráðherra ...
Tsai Ing-wen 蔡英文 | |
---|---|
Forseti Lýðveldisins Kína | |
Í embætti 20. maí 2016 – 20. maí 2024 | |
Forsætisráðherra | Lin Chuan Lai Ching-te Su Tseng-chang Chen Chien-jen |
Varaforseti | Chen Chien-jen Lai Ching-te |
Forveri | Ma Ying-jeou |
Eftirmaður | Lai Ching-te |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 31. ágúst 1956 (1956-08-31) (67 ára) Taípei, Taívan |
Stjórnmálaflokkur | Lýðræðislegi framfaraflokkurinn |
Háskóli | Háskóli Taívans Cornell-háskóli Hagfræðiskóli Lundúna |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka