Serbía
Land í Suðaustur-Evrópu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Serbía (serbneska: Србија / Srbija), opinbert heiti Lýðveldið Serbía (serbneska: Република Србија / Republika Srbija) er landlukt land á Balkanskaga á mótum Mið- og Suðaustur-Evrópu. Serbía á landamæri að Ungverjalandi í norðri, Rúmeníu og Búlgaríu í austri, Makedóníu, Svartfjallalandi, Bosníu og Hersegóvínu og Króatíu í vestri og gerir tilkall til landamæra að Albaníu þar eð Serbía viðurkennir ekki landsréttindi Kósóvó í suðri. Íbúar Serbíu eru um 7 milljónir. Höfuðborgin, Belgrad, er með elstu og stærstu borgum Suðaustur-Evrópu.
Lýðveldið Serbía | |
Република Србија Republika Srbija | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Bože Pravde | |
Höfuðborg | Belgrad |
Opinbert tungumál | Serbneska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Aleksandar Vučić (Александар Вучић) |
Forsætisráðherra | Miloš Vučević (Милош Вучевић) |
Sjálfstæði | |
• frá Tyrkjaveldi | 13. júlí 1878 |
• Konungdæmi Serba, Króata og Slóvena | 1. desember 1918 |
• Upplausn Serbíu og Svartfjallalands | 5. júní 2006 |
Flatarmál • Samtals |
111. sæti 88.499 km² |
Mannfjöldi • Samtals (2022) • Þéttleiki byggðar |
107. sæti 6.647.003 85,8/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2023 |
• Samtals | 164,8 millj. dala (80. sæti) |
• Á mann | 23.534 dalir (80. sæti) |
VÞL (2021) | 0.802 (63. sæti) |
Gjaldmiðill | dínar |
Tímabelti | UTC+1 (+2 á sumrin) |
Þjóðarlén | .rs |
Landsnúmer | +381 |
Eftir að Slavar fluttust til Balkanskagans á 6. öld stofnuðu Serbar nokkur ríki þar á ármiðöldum. Róm og Austrómverska ríkið viðurkenndu konungsríki Serba árið 1217. Það náði hátindi sínum með skammlífu Keisaraveldi Serba árið 1346. Um miðja 16. öld hafði Tyrkjaveldi hernumið allt það landsvæði sem í dag er Serbía. Serbía var vettvangur átaka milli Tyrkjaveldis og Habsborgaraveldisins sem skömmu síðar hóf að þenjast út til suðurs. Snemma á 19. öld var Furstadæmið Serbía stofnað í Serbnesku byltingunni og hóf röð landvinninga. Eftir mikið mannfall í fyrri heimsstyrjöld og sameiningu við Vojvodina sem áður tilheyrði Habsborgurum, tók Serbía þátt í stofnun Júgóslavíu ásamt öðrum suðurslavneskum þjóðum á Balkanskaga. Júgóslavía leystist upp á 10. áratug 20. aldar vegna borgarastyrjaldarinnar í Júgóslavíu. Eftir að styrjöldinni lauk voru aðeins Serbía og Svartfjallaland eftir í laustengdu ríkjasambandi sem leystist upp árið 2006. Syðsta hérað Serbíu, Kosóvó, sem hafði verið undir stjórn Sameinuðu þjóðanna frá lokum Kosóvóstríðsins 1998-1999, lýsti einhliða yfir sjálfstæði árið 2008 og síðan hafa mörg ríki viðurkennt sjálfstæði þess. Serbía gerir enn tilkall til héraðsins.
Serbía er aðili að fjölda alþjóðasamtaka eins og Sameinuðu þjóðunum, Evrópuráðinu, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, Samstarfi í þágu friðar, Efnahagssamstarfi Svartahafsríkja og Fríverslunarsamtökum Mið-Evrópuríkja. Serbía sótti formlega um aðild að Evrópusambandinu 2012 og á í aðildarviðræðum við Alþjóðaviðskiptastofnunina. Serbía er miðtekjuland sem situr ofarlega á ýmsum vísitölulistum eins og vísitölu um þróun lífsgæða, vísitölu um samfélagsþróun og friðarvísitölunni. Stærsti geiri efnahagslífsins er þjónustugeirinn. Þar á eftir koma iðnaður og landbúnaður.